Það haustar snemma

Það ætlar að hausta snemma í ár. Norðanáttin á fullu, hífandi rok hér fyrir sunnan og við frostmark fyrir norðan og austan.  Þurrkar á suðurlandinu.  Sumarblómin á góðri leið með að verða að engu, þar fer fé fyrir lítið. Ágætis gluggaveður svo fremi sem gluggar eru ekki opnir. 

Við mægður gerðum heiðarlega tilraun að vera úti við fyrri partinn, gáfumst fljótlega upp og var ég þó í ullarpeysu. Það dugði ekki til, komin með ljótan barkahósta og slen.

Ég velti óneitanlega fyrir mér  veðrarbreytingum síðustu ára. Engin eiginleg skil á milli árstíða, þær renna saman. Hætt að kippa mér upp við hlýindi í nóvember eða slyddu júnílok. Það ætti enginn að vera undrandi á ferðum ísbjarna hér, þeir hljóta að elta veðrið eða hvað?W00t

Ekki laust við að ég staldri við auglýsingar um sólarlandaferðir þessa dagana, hagstæð kjör fyrir þá sem eru tilbúnir að ,,stökkva út". Er alltaf að verða skotnari í þeirri hugmynd að búa annars staðar en hér á landi, bæði út af lífskjörum og veðráttu. Áherslur breytast greinilega með aldrinum. Meira að segja Danmörk kemur oft upp í huga mér en lengst af hafa Norðurlöndin ekki heillað mín. Best væri náttúrlega að búa á Spáni eða Kanaríeyjum en litlar líkur á almennilegum atvinnuskilyrðum.

Margt sem mælir með því að íhuga aðra kosti en Ísland. Er greinilega komin með nóg í bili. Það er skítkalt og skrokkurinn finnur vel fyrir því.

flensa

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Mér er illa við rok, en það á að lægja - held ég. Ég væri sko til í að búa á Kanarý á veturna, væri ekki hægt að setja upp heilsugæslu á Kanarý fyrir aldraða Íslendinga sem eru þar í fríi?

Sigrún Óskars, 28.6.2008 kl. 18:18

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Við ætum sð skoða það, í fullri alvöru Sigrún!

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 28.6.2008 kl. 18:21

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég er með, en förum til Ítalíu. Ho studiato italiano. Italia est molta bella. Sempre di sole.

Hólmdís Hjartardóttir, 28.6.2008 kl. 18:57

4 Smámynd: Sigrún Óskars

Það er líka sól á Spáni og þar er líka fallegt.  En þú segist hafa lært ítölsku, það kæmi sér vel. En Hólmdís, gamlingjarnir eru á Spáni.

Sigrún Óskars, 28.6.2008 kl. 19:54

5 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Er alveg til í Ítalíu, heilluð af landi og þjóð en þar er ekki sama veðursældin á veturna og á Spáni og Kanaríeyjum, sérstaklega. Mjög margir (h)eldri borgarar vilja vera í sólinni á veturna og koma heim á sumrin. Við gætum etv. reynt að hafa áhrif á ferðamannastrauminn til Ítalíu með ómótstæðilegum tilboðum.  Er þó ekki viss um að ég vilji bjóða upp á stólpípumeðferð og föstu líkt og sumir

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 28.6.2008 kl. 20:00

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

leiðrétti villu.....Italia é molta bella.

Hólmdís Hjartardóttir, 28.6.2008 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband