Vildi bara láta ykkur vita að ég ætla að reyna blogga smá hérna á www.katan.blog.is  ef þið getið ekki fylgst með á facebookinu!
Ég get ekki lofað að ég verði eins dugleg að blogga eins og móðir mín heitin en ég læt inn fréttir af og til =)
Vonandi fylgist þið með!
knús og kossar frá Kötunnni í Ungverjalandinu
Elsku mamma mín hefði orðið 52 ára í dag.
Ekki eru nema átta mánuðir síðan við kvöddum hana í faðmi okkar.
Mamma var mín helsta hetja í lífinu. Ég skil
ekki hvernig hún fór að því að vakna á degi hverjum, vera heimsins besta mamma
og lifa lífinu eftir allt sem hún gekk í gegnum.  Persónulegar árásir í vinnu, einkalífinu og i
pólitík tóku mjög á hana og okkur fjölskylduna en hún lét þó ei bugast og varð
enn sterkari og ákveðnari en áður.
Fráfall Guðjóns, mannsins hennar, fór mjög illa með hana enda mjög óvænt
og átakanlegt.  Eins og venjulega stóð
hún þó bein í baki í gegnum þá erfiðleika sem fylgdu andláti hans og bloggaði
hún mikið í gegnum sorgina.  Það má segja
að bloggið hafi verið ákveðin hjálp í vinnslu sorgarinnar og eignaðist hún
marga góða vini í gegnum það.  Þegar
veikindin hrjáðu hana sótti hún styrk í kveðjurnar á blogginu og því voru þær
ómetanlegar fyrir hana sem og okkur börnin.  Ég vil geta þess að Þórdís Tinna, bloggvinkona hennar heitin, hvílir einungis 4 leiðum fyrir neðan mömmu.  Áttu þær í sérstöku en yndislegu samandi.
En þessir erfiðleikar sem ég nefni  eru þó einungis dropi í djúpu hafi.
Mamma synti á móti straumi allt sitt líf og var án efa fædd undir
óheillastjörnu. Það má segja að þessi þrautarganga í gegnum lífið hafi mótað
hana, gert hana eins frábæra og yndislega og hún var.    Hún var einstaklega frábær
hjúkrunarfræðingur og ekki síðri kennari.
Náði hún að kenna mér margt faglegt sem ég mun búa við alla ævi.  Hún kom starfsfólki 11 E sífellt á óvart,
neitaði að gefast upp og sýndi þvílíka þrautseigju.   Ótruleg
hetja og mín helsta og besta fyrirmynd í lífinu.  Hún var mín mamma, besta vinkona, systir,
frænka og undir það síðasta litla barnið mitt.
Í veikindunum hennar tengdumst við órjúfanlegum böndum.  Á Krít sofnuðum við hönd í hönd og höfðum
aldrei sofið jafnvel. Við höfðum ,,sleep over” á deildinni og dekruðum við hvor
aðra.   Ég sef nú með kápuna við hlið mér og finn enn
mömmulykt. Enn stend ég mig að því að fara hringja í þig enda er þetta enn svo
óraunverulegt.  Ég þrái ekkert heitar en
að knúsa þig og kyssa.  Mig vantar svo
mömmu mína, okkur Haffa vantar múttu okkar.
Þú varst tekin frá okkur alltof snemma. Við höfum reynt að aðlagast
lífinu án þín en það hefur gengið brösulega en við munum þó halda áfram að
reyna því það hefði þú gert.   Ég treysti
því að amma knúsi þig og skáli við þig í dag með ABBA á fóninum því það verður
allavega gert hér í Engjaselinu.  Skál.
Til hamingju með daginn elsku mamma,
Love you 2 elsku besta mamma mín.
Okkar elskulega móðir verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru EKKI afþakkaðir að ósk mömmu enda mikil blómakona!
Ykkar,
Katan og Haffi
Elsku besta mamma okkar kvaddi í faðmi okkar kl. 23.29 í gærkvöldi.  Hún barðist alveg til loka eins og henni var einni lagið.
Við þökkum ykkur öllum innilega fyrir allan stuðning og hlýhug í okkar garð. Kveðjurnar veittu henni og okkur ómetanlegan styrk í baráttunni.
Kveðja,
Haffi og Kata.
Katan bloggar frá 11-E.
Því miður eru ekki góðar fréttir héðan.  Ákveðin þáttaskil hafa orðið í dag í baráttunni hennar mömmu.
Við viljum biðja ykkur að kveikja á kertum fyrir hana senda henni hlýja strauma.
Við munum láta vita um framvindu mála.
kveðjur, Katan og Haffi
Hæhæ, Katan bloggar frá 11 e, okkar ástkæru deild sem við köllum annað lögheimilið okkar.
Hérna gengur allt frekar hægt eignlega of hægt að okkar mati.  Nokkur bakslög hafa komið upp sem við höfðu síður viljað sjá.  Það hafa komið nokkrir dagar sem hún hefur sofið eins og þyrnirós og læknum ekki litist á en alltaf stendur hún upp.  Síðast fékk hún lungnabólgu á mánudag og er á sýklalyfjum og virðist  virka vel.  Gengur brösulega að verkjastilla hana og virðist hún alltaf vera með verki 24/7.  Við vonum að það fari að lagast.   Hún er öll að koma til með hverjum degi og skellti sér í bíltúr með okkur í gær.  Við vonum bara að hún komist heim í næstu lotu!
Við systkinin skiptumst á að vera hjá henni hérna og halda henni félagsskap.    Auja frænka hefur komið og verið hetjan okkar, Dagny og Systa hafa komið með smá gógæti fyrir okkur og Sigga hefur ekki sparað sporin alla leið úr Keflavík og stytt okkaur stundirnar.  Takk fyrir okkur!
Þangað til næst biðjum við að heilsa og þökkum fyrir allar kveðjurnar,
Kveðja Katan
Hangi hér af gömlum vana og held velli líkt og ríkisstjórnin, líklega á sömu henglum.  Reyni að mótmæla stöðunni þó hljóðlega sé enda þýðir vart að öskra með potta og pönnur yfir ástandinu.  Fátt svo sem að fretta, verkjamynstur að breytast þó og gefur síðasti sólahringur vonir um einhverjar breytingar til batnaðar í þeim efnum.  Mér líður betur.  Hef tekið bæjarleyfi og skroppið heim en er líklega orðin einn af sjúklingum LSH, hátæknisjúkrahússins, sem það situr uppi með og kvartað er undan.  Vonast að sú þróun breytist á allra næstu dögum þannig að útskriftarprogram hefjist en ég fer svo sannarlega að verða baggi á hátæknisjúkrahúsinu.
Bæjarleyfin kallar á aukna vinnu og vökunætur hjá krökkunum  enda verða þau að vaka yfir mér svo frúin fari sér ekki að voða enda með eindæmum spræk af sterum og aukaverkum þeirra. Nóg að gera í draumi þó minna sé að gera í veruleikanum, mynstur sem tekur virkilega á er orkukræft á ungana mína. Það tekur hellings á að snúa af sér andrúmslofti sem rýkti um miðja síðustu öld eða koma sér út úr torfbæjum eða gömlum húsakosti þarsíðustu aldar en hver dagur hefst á því að koma sér inn í þann raunveruleika sem ríkjandi er í dag.  Ég er ekki alltaf samvinnuþýð þegar kemur að hrista af mér drauma-martraðarslenið og snúa til veruleikans. Þessi daglegi pakki tekur verulega á krakkana og er ótrúlegt hvað þau sýna mikla seiglu í þeim efnum. Oft á tíðum er enginn greinarmunur á degi og nóttu þar sem dagur og nótt renna saman í eitt. Ég trúi að þetta ástand sé að breytast og ástandð mjakist smátt og smátt upp á við með þeirra hjálp, enda eru þau yndislegust.
Tónninn nokkuð þungur en full ástæða að horfa fram á við með bjartsýni. Uppgjöf er ekki inni í myndinni en þreyta og depurð einkenna andlega líðan sem ekki er óeðlilegt í vondri stöðu.  Ástandið gæti verið verra og við reynum að nyta vel þau spil sem við höfum í höndunum og tökum einn dag í einu. Áframhaldandi meðferð skal það vera og full barátta.
Þakka innilega öll innlitin og kveðjurnar og hlakka til að heyra frá ykkur. Megi þið eiga góða nótt!
Ótrúlegt hve tíminn getur silast áfram en á sama tíma flogið áfram. Kannast einhver við slíka hróplega mótsögn? Á sama tíma og jólin komu, og krakkarnir í jólafrí, snérust öll hjól á ógnarhraða. Stuttur tími til undirbúnings, trréð skreyttt á aðfagnadag, rétt fyrir kl. 20 og hátíðardsteikin snædd kl. 21.30, ,,well done" eins og einhvers staðar segir. Margt gekk upp, við áttum yndislegan tíma saman en óneitanlega lituðu tæknilegir örðugleikar nokkuð dagana og ófáar ferðir farnar niður á LSH til að laga dælur og verkjastilla garminnn. Slíkt er fljótt að gleymast þegar ánægjulegar stundir komu inn á milli.
Það að hafa fengið krakkana í jólafrí bætti í raun alla vanlíðan og  vonbrigði og tíminn leið á ógnarhraða. En á sama tíma silaðiðst hann áfram í vissum skilningi.  Ég komst varla upp stigana innanhúss, átti erfiðara að vera heima vegna verkja og krakkarnir á vöktum yfir þeirri gömlu til að hún færi sér ekki að  voða, einkum á næturnar. Virku dagarnir poppuðu uppð á milli rauðu daganna, fáir aðvísiu en engu að síður drungaalegir. Þeim fylgdu vandamál, þung mál sem þarf að leysa, ég ekki undandskilin öðrum í þeim efnum.  Ekki bætir efnahahagsástandið í landinu ásandið nema síður sé. Það verður töff að leysa þessi mál, úrræði fá og tími naumur. Sem betur fer á ég góða að til að leiðbeina mér en kerfið er þingt í vöfum og drungalgt eins og mér hefur oft verið tíðtætt um. Sjúklingar eiga fá talsmenn, ef þá nokkra. Það þekkja flestir sem hafa veikst alvarlega.
Hlutverk aðstanenda í veikindum sem þessum, vilja gjarnan gleymast, því miður. Það er gríðalega erfitt fyrir þá að horfa upp á náinn aðstandenda í gegnum erfið veikdindi, verki og önnur óþægindi, svo ekki sé minnst á óvissu, efa og kvíða. Geta í raun ekkert gert  í stöðunni annað en að vera til staðar og veitt móralskan stuðning eftir þörfum og reynt að taka ómak af ýmsu tagi af manni. Því eru þó takmörk sett, sumt geta þeir ekki gert og finna því til vanmáttar síns.  Því þurfa þeir oft ekki síður þétt stuðningsnet í kringum sig en sá sem er veikur. Þeirra líðan er oft ekki beysin, hef ég trú á.
Fraumunda eru samanburðarraggóknircí dag, fór í segulómunina í gær og beonaskann í dag eftr hádeg þannig að það styttist í niðurstöður um árangur á þeirri  meðferð sem ég hef verið á síðustu vikur. Ekki nægjanlegur tími liðinn til að fá marktækar niðurstöður en þó nægjanlegur til að gefa eihhverjar vísbendingar  um stöðu mála.
Ég vil vita hvort við séum að puðra lyfjunum út í loftið eða hvort við erum að ná einhverjum árangri með þessu  brölti.  Vaxandi verkir eru vissulega áhyggjuefni en gætu átt við fleira en vaxandi vöxt meinsins; bjúgur og bólga geta hafa hlaðist upp o.s.frv. Við þessum spurningum fáum við sennilega svör við sem skiptir höfðumáli, ekki síst fyrir krakkana og aðra aðstandendur.  Vonandi ekki lengur en fram að helgi þangað til skal bitið á jaxlinn eins og vant er. Við erum orðinþja´lfuð í biðtím, efa og óvisssu.Það erhægt að verða meistari í flestu
Takk yndislegust fyrir kveðjurnar og innlitið, þið eruð langflottust
Loks virðist eitthvert stablitet komið á verkjastjórnununa í gær og dag. Það hefur löngum þótt erfitt að finna rétta meðferð við verkjum frá taugakerfinu.  Í mínu tilviki er  það sem bévítans meinið sem þrýstir á mænu og taugar og fátt eitt dugar gegn verkjunum þrátt fyrir miklað yfirlegu verkjalyfjasérfræðinga.   Ég veit að menn hafa legið yfir samsetnengu lyfja og farið ýmsar leiðir sem loks virðast vera að skila sér með minnkandi verkjum og þar með meiri getu minni til höndla sjúkdóminn.  Öll orka mín hefur farið í allt að 12-14 klst. verkjaköst, ekkert eftir í aðra baráttu síðustu 2 vikurnar.
Þeir sem hafa sinnt mér í þessari baráttu hafa sýnt ótrúlegt þrek og þol, að menn skyldu ekki gefast  á stundum, skil ég ekki.  Þeir eru hetjur í mínum huga og  hefur stuðningur krakkanna og annarra aðstandenda ekki síður haft sitt að segja og sama bókstaflega fleytt mér upp úr þeim pytti sem ég hef legið föst í. Baráttuþrekið væri uppurið án þeirra, svo mikið er víst.
Ég tel mig sem sé komna upp á þurra syllu þar sem næstu skref verða tekin. Ég held áfram þeirri meðferð sem sett upp og útskriftaáætlun planlögð af skynsemi og í rólegheitunum. Í þetta skiptið liggur minni ekki á, tek þetta í litlu skrefunum. Ég er nefnilega ekki að flýta mér núna, ég er ekki á förum neitt.  Minn tími er ekki kominn.
Næstu dagar fara í að prófa nýju verkjalyfjablönduna og prófa okkur áfram. Ég er full bjartsýni um vel takist enda hafa krakkarnir staðið sig ótrúlega vel, andlega sem tæknilega við ummönnun, lyfjagjafir o.f.
Tek stutt bæjarleyfi yfir nótt og hef deildina í bakhöndindina ef vandamál koma upp. Hef koðnað nóg niður, nú er það einungis uppleiðin
Ég er ykkur, bloggvinum, óendanlega þakklát fyrir innlit og hlýjar kveðjur. Gleðilegt árið öll sömul og kærar þakkir fyrir samfylgdina á árinu sem var að líða.
Loksins komin í samband.  Það hefur verið á brattann að sækja síðustu daga vegna bévitans verkja og tæknilegra örðuleika.  Hef notið umönnunar frábærs starfsólks, á eiginlega ekki til orð til yfir því hversu vel þetta starfsfólk sinnir sínum störfum á krabbameinslækningadeildinni.  Þrátt fyrir erfiða tíma hef ég átt yndislega kafla með krökkunum og notið jólanna. Leið eins og prímadonnu á aðfangadagskvöld þar sem allt gekk upp, stemningin, ljósin, jólatréð, pakkarnir og umframallt börnin.  eina undantekningin var þó maturinn sem var "over done" sem þrátt fyrir allt bragðaðist vel.
í dag fékk ég nýja deyfingu sem gekk vonum framan og naut fylgdar frumburðarins í gegnum allt ferlið sem var mér ómetanlegt.  Krakkarnir hafa lagt allt sitt í að fylgja mér hvert einasta skref í meðferðinni, sorgum og sigrum.  Án þeirra hefði ég nú misst baráttuþrekið.  Við skelltum okkur í fjölskylduboð á sunnudag þar sem stórfjölskyldan kom saman og naut ég mín í tætlur og átti góða kafla.
Á morgun liggur fyrir fjölskyldufundur sem hefur endurtekið verið frestaður vegna ástands míns. Ég á ekki von á að neitt nýtt komi fram á þessum fundi annað en að staðan verði tekin út og framhald næstu daga ákveðið.  Ég er komin upp úr pittinum, krafsa í bleytunni á uppleið og ætla mér að vera komin í þurrt skjól í byrjun nýrs árs.
Þungum málum mjakast áfram enda nýt ég góðra aðstoðar í þeim efnum.  Þó er ljóst að kerfið blýþungt og mér ekki hliðhollt að öllu leyti.
En dagurinn í dag var mjög góður og leiðin er bara upp á við! Ég vil þakka fyrir allar kveðjurnar en þær hafa hjálpað mér mikið.
Eitt og annað er búið að ganga á undanfarna viku.  Öll orka farið í að verkjastilla frúna, gleði og vonbrigði í þeim efnum en virðist vera á réttri leið, LOKSINS! Prímadonnan komin heim með glæstu einkunn eftir sólahringsferðalag. Ekki smá stollt af minni dömu sem mætti aðfaranótt aðfangadags klukkan 2.30 að líta á gömlu og ekki vikið frá mér síðan fremur en prinsinn.
Lyfjabreyting, heimkoma barnanna, bæjarleyfið eða blanda af öllu, er einhver viðsnúningur í líðan þeirri gömlu en svo virðist sem verkir víki fyrir öðru.  Ég er búin að vera í bæjarleyfi síðan seinnpartinn í gær þrátt fyrir erfiða daga þar á undan, með smávægilegum uppákomum.  Hef komið sjálfri mér og staffinu, sem er allt yndislegt, á óvart með batnandi liðan.
Ég hef ekki haft orku eða heilsu til að blogga né nokkuð annað vegna bévítans heilsufarsins þrátt fyrir nokkar tilraunir í þeim efnum þannig að þessi viðsnúningur kom bæði mér og starfsfólkinu á óvart.  Ég er ekki frá þvi að allar kveðjurnar frá ykkur, kæru bloggvinir hafi haft sitt að segja og þakka ég fyrir einlægar og hlýjar kveðjur undanfarna daga.
Framundan er áframhaldandi lyfjameðferð og tilraunastarfsemi á verkjameðferðinni sem virðist lofa góðu.  Of snemmt er að segja til um árangur lyfjameðferðar fyrr en um miðjan janúar. Þannig það er ekkert annað að gera í stöðunni en þreygja Þorrann og vona það besta. Ekki er stefnt að útskrift fyrr en verkjaástand er stöðugt enda ekki tilbúin að fara í gegnum batteríið á ný af óþörfu.
Mig Langar að nota tækifærið að óska ykkur öllum kæru bloggvinir og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsæls komandi ár.  Mín jólakort hafa ekki verið send í póst ennþá af augljósum ástæðum og biðst ég velvirðingar á því.  Vona að þið hafið það gott yfir hátíðarnar og þakka af alhug stuðning og baráttukveðjurnar á síðustu misserum.
Þessi pyttur er djúpur og brekkan blaut en ég ætla að fara hana alla leið með hjálp barnanna og annarra. Erfiðleikarnir eru til að sigrast á.
Héðan af LSH er bærilegt að frétta. Maturinn breytist reyndar ekki þrátt fyrir næringaráðgjöf en kosturunn við ástandið þó sá að ég get látið allt eftir mér sem mér sýnist sem er náttúrlega ólýsanlega ánægjuleg forréttindi; smákökur, nammi í tonnatali, kakó, samlokur; ,,just name it!
Enn gengur illa að verkjastilla frúnna, næturnar alverstar í þeim efnum líkt og áður.  Hinn eiginlegi dagur hefst því ekki fyrr en um og upp úr hádegi hjá primadonnunni sem fellur ágætlega inní mitt norm sem þarf að vera öðruvísi en annarra.  Af þessum sökum er útskriftarplanið sett á bið í raun, heima get ég ekki verið á næturna ennþá, a.m.k. Leyni því ekki að þetta eru ákveðin vonbrigði, taldi mjög raunhæft að stefna að útskrift fyrir heimkomu Haffans á morgun en þær væntingar hafa brugðist.  Það dregur hins vegar ekkert úr tilhlökkuninni að fa hann heim. Drengurinnvar að leggja af stað rétt í þessu, flýgur heim í gegnum Frankfurt og verður kominn heim um miðjan dag á morgun, búinn að ljúka öllum prófum annarinnar
Katan hefur ekki staðið sig síður vel, búin að ljúka hverju hlutaprófinu á fætur öðru með stæl, stundum allt að 3 slík prófum í viku en með þessum hætti losnar hún við nokkur lokapróf og minnkar umgfangið á stærsta og erfiðasta prófinu.  Nemendur hafa flestir tekið sér nokkrar vikur í upplestur fyrir það próf, hún tekur sér 3 daga! Ég ætla rétt að vona að allir góðir vættir standi með henni þannug að það plan nái fram að ganga en hvernig sem allt fer kemur snúllan heim þann 23. des, á afmælisdegi bróður síns.
Þó margt hafi ekki gengið eftir síðustu daga og vikur, hefur sumt gert það. Sigrún sys verið nánast í fullri vinnu við að  aðstoða mig við ýmiss erfið mál sem ég hef ekki verið fær um að sinna og hvílt þungt á mér. Sumt ætlar að ganga upp, annað ekki eins og gengur en þá verður bara að hugsa málin upp á nýtt. Ekki hefur þáttaka Tóta bro verið síður mikilvæg sem vinnur að máli sem lengi hefu hvílt á mér og er saga að segja frá per se!  Ég finn alla vega hvað kvíðahnúturinn hefur aðeins slaknað og veit eins og flestir hvaða áhrif erfið mál geta haft á líkamlega líðan okkar. Þetta kemur vonandi smátt og smátt.
Hvernig sem fer og hvernig þróunin verður næstu daga er eitt víst; litla famelían ætlar sér að halda gleðileg og ánægjuleg jól. Visuulega mun vanta nokkuð upp á það sem maður hefði hefði viljað, Guðjóns er sárt saknað og ýfa hátíðarnar þann kafla upp. Ég verð hins vegar, líkt og allir aðrir að sætta mig við orðin hlut og læra að lifa með þeim atburði og hans ákvörðun.  Allir syrgendur þekkja þessa líðan og jólin eru þung í þeim skilningi.
Vonandi góður svefn í nótt, tilhlökkun að hitta Haffa hjálpar til, trúi ég.  Við tvö þurfum að leggjast á eitt að styðja við bakið á Kötunni þessa daga sem hún á eftir. Þeir verða töff, ástæðulaust að draga dul á því en fram til þssa hefur styrkur hennar verið ótrúlegur.  Ég hef þá trú að hann verði það áfram. 2 systkinabörn mín standa í sömu sporum og mínir krakkar og hafa sýnt sama styrk og sjálsfaga. Þau búa greinilega öll yfir sömu genunun, eins og sumir hafa nefnt.  Sem betur fer
Mætt til leiks á ný.
Vikan búin að vera býsna strembin enda ég öðruvísi en aðrir og sérstakt  ,,Case" sem hefur verið ögrandi fyrir verkjalyfjteymið hér á LSH. Hef sko haft  lúmskt gaman af því að láta hafa fyrir mér. Það hefur svo sannarlega tekist.  Nú í vikulok erum við að sjá árangur af þeirri miklu vinnu sem sérfræðingur teymisins hefur lagt í þessa verkjastillingu. Sumir dagar hafa verið ólýsanlega erfiðir og hreint ,,helv...." á meðan aðrir hafa verið mun betri. Mér stóð reyndar ekki á sama um tíma, satt best að segja en eins og staðan er í dag er sóknarleikur en ekki vörn.
Dvölin hér hefur því verið lengri en til stóð í upphafi. Starfsfólkið hér er alveg einstakt upp til hópa enda lögð áhersla á gagnkvæma virðingu  og mannlega reisn. Hef náörugglega ekki alltaf verið þeim auðveld með mínar ,,sérþarfir", enda löngum verið sagt að heilbrigðisstarfsmenn séru verstu sjúklingarnir. Ég er því sammála.  Því fylgja bæði kostir og gallar.
Hér hefur verið líflegt á heimsóknartímum, fjölskyldan yndisleg sem er mér mikils virði. Meira segja hafa landsbyggðatútturnar flestar komið við sem er ekki sjálfgefið á þessum tíma. Dagurinn því frábær og mín nánast verkjalaus. Þau kippa sig lítið við þó frúin sé eins og draugur, hrikalegt að sjúkhúsin skulu ekki reka snyrtistofu fyrir okkur lazarusana, ekki veitir af. Kannski góð viðskiptahugmynd fyrir einhverja??  Önnur viðskiptahugmynd gæti falist í ekstri á litlu, kóssý kaffihúsi fyrir sjúklinga og ekki síst starfsmenn, maturinn er satt best að segja ekki mjög girnilegur. Mér þykir ljótt að kvarta en
Krakkarnir búnir að standa sig eins og hetjur og gengið vel í prófum fram að Þessu. Haffinn á eitt eftir en prófpakki Kötunnar er gríðalega þungur; hún tekur 3 daga í upplestur á meðan flestir taka nokkrar vikur í ferlið!   Fræðilega mögulegt, hún er vel lesin eftir veturinn en góðir straumar og heppni þurfa líka að koma til. Ég veit að ég er ansi hörð við þau með því að  nánast þvinga þau til að ljúka önninni áður en heim er komið í jólafrí en treysti því að þau skilji tilganginn, alla vega með tímanum. Þau hafa sýnt ótrúlegan sjálfsaga og hörku við sjálfa sig, ég geri mér  fulla grein fyrir því hversu erfið þessi staða er erfiðari fyrir þau en mig. Það styttist sem betur fer í heimkomu þeirra, Hafinn verður mættur á svæðið á fimmtudag en ég ætla mér að vera komin heim á undan honum.
Ég ætla mér að halda áfram að vera öðruvísi í jákvæðum skliningi þeirra orða. Tel mig hafa sigrað þessa lotu. Geri mér grein fyrir því að það gerði ég ekki hjálparlaust og vil því þakka ykkur öllum sem til mín hugsa, senda hlýja strauma og baráttukveðjur einlægar þakkir. Þið eruð frábær tri e
Hlakka til morgundagsins, hann skal verða betri en þessi.  Ólikt skemmtillwgra að spila sóknarleik en vörn.
eJD
Það hefur svo sem ekki verið minn stíll að fylgja norminu líkt og venjulegt fólk, þannig hefur  það verið í mínum blessuðu veikindum einnig. Það var nú svolítill stæll á þessari uppákomu; mér tókst að poppa ferlið aðeins upp. Var eins og siðprúðum ,,dömum " sæmir að sparsla upp hrukkur og önnur þroskamerki þegar ég man síðast þar til rúmum fimm tímum síðar að vinkona Kötunnar, hún Heiðrún, fór að líta eftir frúnni sem enginn hafði haft spurnir af á LSH fremur en krakkarnir. Nú þessi elska náði sambandi við slyttið sem lá þarna í mestu hægindumað því er virtist, þannig að samband var komið á, þó slitrótt væri. Systursonurinn ræstur út í fullum skrúða og Sigrún úr Kef. Það tók ekki langan tima að ná til kellu en illa var hún áttuð á stað og stund, eiginlega kengrugluð en óbrotin, merkilegt nokk og mér til nokkurrar undrunar
Það þarf ekkert að fara í næsta pakka, ég neyddist til að fara í  gegnum bráðamótttöku LSH við Hringbraut sem tók sína hefðbundnu 6 tíma eða svo (alltaf þarf maður að kyngja öllu stolti) Síðan lóðbeint á krabbameinsdeildina, orðin þokkalega afrugluð og hef haldist þannig síðan. Til að gera langa sögu stutta, liggur fyrir að meinið hefur tekið sig upp aftur, eins vitað var fyrir en fengið tækifæri til að hreiðra um sig síðasta árið eða svo með tilheyrandi ,,drauga- og taugaverkjum" eftir brjóstholsaðgerðina 2006 og fengið gott ráðrúm til þess.
Staðan sem sé eilítið flóknari en maður ætlaði, það á svo sem ekkert að koma okkar litlu famelíu á óvart enda orðin sjóuð í þeim efnum. Erfiðasti hjallinn hjá mér nú er að finna réttu verkjalyfin og ná fram verkajstillingu. Verkjateymi svæfingar- og skurðssviðds framúrskarandi sem fyrr og lyfjameðferð komin á fullan sving þannig að þau mál eru í góðum farvegi. Ég á hins vegar mjög erfitt með að telja niður dagana þangað til gersemenin mín komast heim.  Það er okkur ofviða fjárhagslega að breyta farmiðum á þessum árstíma við núverandi gengi og kreppu sem allir finna fyrir.  Auk þess gæti það verrið flókið mál að fresta prófum og hugsanlega tapa allri önninni þar sem óvissa er alltaf til staðar.
Gullmolarnir mínir hafa staðið með eindæmum vel. náð að komast í gegnum töff tímabil og erfið próf, samliða nagandi ótta og kvíða, fjarlægð og söknuð! Í mínum huga er ekki hægt að standa sig betur, slík seigla og sjálfsstjórn eru ekki öllum gefin. Mín vandamál og líðan eru smávægileg miða við það sem þau eru að ganga í gegnum!
Gersemi mínir eru algjörar hetjur og ég stoltari en nokkur orð fá lýst, Sigrún sys bókstaflega fórnað sér fyrir mig ig önnur systkini að styrkja andlegt stuðningsnet auk þess að veita mér ómældan, andlegan og móralskan styrk.  Getur einhver farið fram á meira? Ég á góða að, á það ekki síður við mína kæru bloggvini.  Næsta skref er heimferð, að henni er stefnt á næstunni en reyni að að vera skynsöm í þeim efnum þannig að ég blússi ekki strax inn aftur í einhverju bévítans veseni.  Hlakka til að fylgjast með bloggheimum á ný.
Eigið góðan dag, mín kæru
Kæru vinir og vandamenn!
Enn eru það börnin sem skrifa fyrir hönd mömmu sinnar.  Mamma liggur ennþá á spítalanum.  Loksins hafa allar þessar rannsóknir gefið okkur einhver svör þó svo að þær hefðu vissulega getað verið skemmtilegri.  Ljóst er að skrambinn hafi sótt í sig veðrið en engan bug er að finna á baráttuglaðri móður okkar að venju. Hun er þegar komin í boxhanskana og tilbúin í bardagann!
Hefur Sigrún systir hennar fært henni tenginu við alheiminn (tölvu) þar til hún kemst heim á næstu dögum og mun hún skella inn færslu von bráðar.
Hún bíður nú bara í ofvæni eftir því að komast heim að skreyta og gera huggulegt fyrir heimkomu okkar!
Við þökkum fyrir allar kveðjurnar,
Haffi Dan og Kata Björg