Svefn

Komin í gamalkunnugt mynstur, svaf í hádeginu og aftur í kvöld. Missti eiginlega af kvöldinu, glaðvakandi núna. Ég er ekki hægt eins og stendur einhvers staðar. Bév.... verkir á næturnar, kolrugla öllu prógramminu með þessum uppákomum. Komin á eftir með eitt og annað, hlýt að ná að vinna það upp á næstu dögum. Verð ósköp fegin þegar þessi vika er búin.W00t

Haffi steinliggur með pest, hósta, kvef og slappleika. Ekki er móðirin að halda honum félagsskap en reyni þó að passa ungan þegar frúin er í vökuástandi.  Held að hann sé hálf hneykslaður á móðurinni núna. Styttist heldur betur í brottför hjá honum, fer út á sunnudagsmorgun. Katan komin á fullt í skólanum og plummar sig fínt að vanda.

Ekkert annað að gera en að henda sér á koddan og vona að þessi nótt verði skárri en sú síðasta. Finnst lítið spennandi að standa í þessu næturbrölti, er búin að segja upp veikindapakkanum Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

:) bara að kvitta fyrir innlitið . Ég man þá tíð að maður fót heim úr vinnunni og lagði sig í hádeginu. Það var góður tími .. Kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 6.2.2008 kl. 08:04

2 identicon

Allt komið á full hérna.. Var í fyrsta verklega anatomy tímanum mínum í morgun.... spennó.... Svo er alvaran eftir 2 tíma...

Allt gott að frétta héðan.. fótbolti í kvöld og alles! öflugar við stelpurnar hérna.! =) 

Kata Björg (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 14:29

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

kvitt kvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.2.2008 kl. 15:35

4 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Kvitt, þetta kemur

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 6.2.2008 kl. 18:07

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

 kveðjur.

Georg Eiður Arnarson, 6.2.2008 kl. 20:18

6 Smámynd: Sigrún Óskars

Vonandi verður tekið mark á uppsögninni. Sendi þér kveðjur,  

Sigrún Óskars, 6.2.2008 kl. 21:08

7 Smámynd: Ásta Björk Solis

Vonandi lagast thettad nu hja ther Eg er a svipudum bati med barnabarnid hun heldur mer vakandi daga og naetur thvi mamma hennar tharf ad komast i skolann a daginn

Ásta Björk Solis, 6.2.2008 kl. 22:11

8 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Hádegislúrinn gerir kraftaverk. Allt kemur þetta smátt og smátt. Hjartans þakkir fyrir kveðjurnar, þið eruð yndislegust

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 7.2.2008 kl. 00:53

9 Smámynd: Jón Svavarsson

Lífið hefur margar hliðar

það hef ég fengið að reyna,

fet og fet það áfram miðar

þið vitið hvað ég meina.

kkv. 

Jón Svavarsson, 7.2.2008 kl. 22:26

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ástarkveðjur.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.2.2008 kl. 23:07

11 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Nákvæmlega Jón, vel mælt

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 7.2.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband