Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bloggheimar og þorrablót

Ákvað að sitja heima og sleppti þorrablóti fyrir vestan, enn annað skiptið. Er einhvern veginn ekki tilbúin til að skemmta mér, finn mig ekki í því. Þorrablót vekur upp erfiðar minningar frá því í fyrra. 

Hef þess í stað verið óvenju actív í minni heimavinnu og reynt að vinna mér í haginn fyrir næstu viku sem verður vægast sagt strembin.

Búin að vera ótrúlega dugleg að kíkja á bloggsíður. Sé ekki betur en að allt ætli um koll að keyra vegna borgastjórnarskiptanna og mönnum heitt í hamsi. Margir hverjir ótrúlega orðljótir og rætnir sem vekur mann til umhugsunar. Eru svo menn að hneykslast á því að plólitíkin sé rætin Whistling

Þó hafa einhverjir verið á léttu nótunum og ýmiss kveðskapur verið birtur. Leyfi mér að setja inn nokkur vísukorn sem mér finnst bera afTounge

Borgarblús
 
Dagur er liðinn og dæmalaus sorg,
depurð og leiði í hnípinni borg.
Ólafur Frjálslyndur (óháður þó)
öllu brátt ræður í fjúki og snjó.
 
Björn Ingi snarar sér Boss-jakkann í,
blessaður engillinn kominn í frí.
Svandís er forviða, heldur um haus,
hennar er stóllinn þó alls ekki laus.
 
Vilhjámur Þ., sá er stóð upp úr stól
og stakk af til Kanarí rétt fyrir jól,
kemur til baka með börnin sín smá
og borgmester verður að ári hér frá.

                                                      Höfundur óþekktur (því  miður)

Og næsta:

Græða á daginn og grilla á kvöldin,
Gróu þeir hitta og sögur út bera.
Hraðlygnir pésarnir hrifsa svo völdin,
hrossakaup mikil um stóla þeir gera.

Litlir og saklausir lúta þeir valdi
laun munu fá þó að biðin sé löng.
Ekkert það stoðar þó móinn í maldi
meiningin foringjans aldrei er röng.

Kristjana Bjarnadóttir  http://bubot.blog.is/blog/bubot/

Seinni kveðskapurinn minnir mig reyndar á ástandi í minni fyrri heimabyggð. Mér skilst að einhverjir séu svo heilaþvegnir gagnvart mér að hollast sé fyrir mig að vera heima þegar menn eru með áfengi um höndBandit Það er ekki tekið út með sældinni að vera ,,kyngimögnuð" kona.

Vona að krakkarnir fái frið til að skemmta sér og að þau komist heil á húfi heim á leið Undecided

 

 


Eldar loga

Nú loga eldar stafnanna á milli innan Framsóknarflokksins. Rætnar árásir á einstaka meðlimi og fulltrúa, svo rætnar að hver fjölskylda hlýtur að kikna undan þeim. Kjörnir fulltrúar eru nefnilega ekki einir, að baki þeim stendur yfirleitt einhver fjölskylda. Henni er ekkki hlíft.

Ég þekki slíkar árásir af persónulegri reynslu og það gerir fjölskylda mín einnig. Við fengum að kynnast ólyfjan framsóknrmennskunnar svo um munar og það gerðu fleiri af mínu ættslegti, heldur betur. Þó það sé sagt að mönnun hefnist einhvern tíman fyrir vélbrögð, þá er það nú svo að þegar kemur að því er ekki beint sætt bragð upp í manni. Það má rétt vera að menn eigi það skilið að súpa seyðið af eigin ólyfjan og sennilega er það mun erfiðara en þegar þeir byrla það öðrum en þegar kemur að skuldadögum getur maður óskað öðrum svo illt?

Ég er hreinlega döpur eftir að hafa fylgst með því skítkasti sem hefur átt sér stað innan Framsóknaflokkisns að undanförnu. Ætti að fagna því að sú rætni sem þar ríkir skuli vera komin upp á yfirborðið og þjóðinni ljós. En ég get það ekki, svo mannskemmandi er hún að ég óska engum svo ills að lenda fyrir henni. 

Það er hins vegar augljóst að núverandi forysta ræður ekki við neitt, enda trúlega jafn sýkt og innviðirnir.   Oft hefur mér að orði að flokkurinn sé liðinn undir lok, hvernig má annað vera miðað við þá spillingu sem þar ríkir?  Þegar svona er komið, er réttast að forystan víki sem og klíkurnar og hleypi grasrótinni að til að byggja upp úr rústunum. Nú verða menn að kannast við og bregðast við eigin vitjunartíma áður en fleiri einstaklingar og fjölskyldur liggja í valnum. Það að þreyja þorran með rómantískan glampa í augunum er ekki að virka í nútíma þjóðfélagi. Menn verða að fara að viðurkenna að þetta er búið spil.


Í hringi

Ég snýst í hringi núna, líkt og aðrir landsmenn. Hvernig má annað vera í þeim pólitísku sviptingum dynja yfir borgarbúa og landsmenn alla í raun? Sagan að endurtaka sig, einungis 103 dagar síðan borgarpólitíkin tók óvænta stefnu, eiginlega um 360°!  Grunnurinn virðist ekki síður veikur nú og þá. Hvernig ætlar Ólafur F. Magnússon að standa vaktina einn, ekkert bakland. Er í raun flokkslaus, yfirgaf sinn flokk með Margréti Sverris á sínum tíma og nú fylgir hún ekki ,,guðföður" fráfarandi meirihluta. Kannski hún verði búin að skipta um skoðun í fyrramálið, það er aldrei að vita og ekkert kæmi á óvart í þeim efnum sem öðrum í pólitíkinni.Sideways

Villi hlýtur að vera kampakátur og vonandi hefur borgarflokkur Sjálfstæðismanna náð að efla liðsheildina. Menn virðast sáttir innbyrðis enda búnir að læra af biturri reynslu. En ,,come on" til hvers eru kosningar og hver er tilgangurinn með því að fara á kjörstað og kjósa? Kjörnir fulltrúar haga seglum eftir vindum hverju sinni og það fer ekki fram hjá neinum að vindáttin er síbreytileg í pólitík Reykjavíkurborgar. Hvar er ábyrðgartilfinning kjörinna fulltrúa gagnvart kjósendum?

Menn tala um traust, trúnað og trúverðugleika hver ofan í annan. Ég fæ ekki séð að nokkur af þeim kjörnum fulltrúum í Reykjavíkurborg eigi þá innistæðu. Menn stinga hvorn annan í bakið og á hol eins og ekkert sé og halda svo áfram með næsta þar til þeir eru komnir allan hringinn. Minnir mig á Sturlungaöld hina síðari vestur í Dölum, sem mörgum þótti ekki til eftirbreytni W00t

Ég get ekki sagt að ég þekki væntanlega borgastjóra nokkuð skapaðan hlut, hann virðist þó hafa nokkur áhrif innan borgarstjórnar úr því honum tekst að mynda í raun 2 nýja meirihluta á rúmlega hundrað dögum. Hann hlýtur að vera klókur á einhverjum sviðum en mér sýnist hann hafa reist nýja bústað sinn á sandi núna. Sá maður sem hefur ekkert bakland stendur ekki lengi vaktina einn uppi í brúnni. Það gefur auga leið.  Það á hann einnig að vita enda læknir. Þeim virðast fjölga ofurlæknunum, hann skipar sér í hóp ofurlæknisins fyrir vestan sem er allt í öllu, allan sólahringinn.

Eitthvað virðast fyrri veikindi vera viðkvæmt mál fyrir Ólaf, ekki veit ég hvað plagaði manninn en hann er nýkominn úr rúmlega árs veikindaleyfi. Vill ekki ræða þau mál og telur allar spurningar þ.a.l. óviðeigandi og get ég að vissu leyti tekið undir það. Veikindi eru einkamál hvers og eins. Það er hins vegar eðlilegt að velta því fyrir sér hvort að maðurinn sé í stakk búinn til að standa undir því mikla álagi sem framundan er. Það hefði því verið sterkt að upplýsa þjóðina og fullvissa hana um eigin styrkleika í þeim efnum. 

Ég verð að segja eins og er, ég er með rugguveiki líkt og aðrir. Hvernig má annað vera? Hversu margir nýjir meirihlutar verða myndaðir fram að næstu kosningum? Í öllu falli tel ég þá sem hafa staðið að þessum sviptingum öllum, rýtingsstungum og trúnaðarbresti vera búna að stimpla sig út úr pólitíkinni í framtíðinni. Hef ekki trú á því að borgarbúar né aðrir, séu tilbúnir að treysta þeim aftur. Menn voru kosnir vegna stefnu þeirra og málefna, treyst til að fara vel með það umboð og vinna að þeim áherslumálum sem þeir settu á oddinn. Þeir skipta svo um hest í miðri á, jafnvel oftar en einu sinni og kjósendur hafa ekkert um það að segja, ekki fyrr en í næstu kosningum. Hverjum verður þá treyst til að fara með völdin?Sick

 

 


Rýtingsstungur

Það hlaut að koma að því að meinsemd Framóknarflokksins kæmi loks upp á yfirborðið. Langvarandi valdabarátta og klíkumyndanir svo hrikalegar að ég á eiginlega engin orð til að lýsa þeim. Í öllu falli var erfitt að verða vitni af hvorutveggja þegar ég hóf mín fyrstu skref sem flokksbundin Framsóknarkona. Trúði vart mínum augum, eyrum og annarri skynjun þegar ég sat hvert flokksþingið á fætur öðrum.W00t

Var m.a. vitni af því þegar Halldórsmenn beinlínis stilltu þá flokksmenn upp við vegg sem voguðu sér að gagnrýna forystuna á valdatíð Halldórs og þeim hótað öllu illu, létu þeir ekki af gagnrýninni. Skipti þá engu máli þó gagnrýnin hafi verið á rökum reist.  Ófögur orð voru gjarnan látin falla.

Til voru þeir sem létu ekki segjast og bentu á meinsemd flokksins. Skoðanaskipti ekki leyfð og þeir sem voguðu sér að láta skoðanir í ljós voru beinlínis ,,teknir af lífi í beinni", hraktir í burt og smáðir. Sem betur fer höfðu sumir þrautseigju til að halda áfram og berjast fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum og stefnu flokksins. Þeir reyndu að verja hagsmuni hins almenna flokksmanns en auðvitað kom að því að þeir hreinlega yfirgáfu flokkinn, búnir að fá nóg af valdníðslu og mannorðsmorðum. Margir þeirra niðurbrotnir menn, aðrir létu aldrei bugast og héltu fast í eigin sannfæringu og þau gildi sem Framsóknarflokkurinn stóð fyrir. Reynt var að vængstífa þá og sumir reyna það enn.Whistling

Ekki veit ég hvað er til í ásökunum  Guðjóns Ólafs í garð Björns Inga, hef ekki forsendur til að taka afstöðu til þeirra en vinnubrögðin í anda ,,framsóknarmennskunnar" þar sem tekist er á í fjölmiðlum og reynt að taka menn af lífi þar.  Ég er ekki búin að gleyma þeim níðskrifum sem Guðjón Ólafur  birti um Kristinn H. sem var kennt um allar ófarir flokksins á sínum tíma. Ég sé ekki betur en að það gjósi enn innan flokksins, meira ef eitthvað er, þó Kristinn sé farinn úr flokknum. Mér heyrist Björn Ingi vera sá sem eigi að bera alla ábyrgð á óförunum og tapi annarra nú. Og hvað með ábyrgð fyrrum formanns? Hvað með ábyrgð fyrrum formanns? Fátt heyrist í þeim efnum og þá helst í tengslum við nýútkomna bók Guðna.Gegnir fráfarandi formaður ekki ábyrðgarstöðu Norrænu sendinefndarinnar nú? Hefur hann kannski fallið í gleymskunnar dá??Sleeping

Formaður flokksins virðist stinga hausnum í sandinn þegar kemur að innri ólgu og deilum innan hans, í öllu falli hefur honum ekki tekist að sætta stríðandi öfl innan hans. Hann talar um 12 þúsund félagsmenn í dag. Ég leyfi mér að efast um að sá fjöldi sé til staðar innan flokksins, við eru æði mörg sem höfum gefist upp og yfirgefið hann. Hvernig má annað vera þegar skipstjórinn og stýrimenn eru ekki tilbúinir til að takast á við vandan, hvað þá að bjarga sökkvandi skútunni. Er ekki sagt svo um sökkvandi skútu að rotturnar séu síðastar að yfirgefa hana - eða hvað?

Get ekki sagt að þetta nýjasta upphlaup Guðjóns Ólafs komi mér á óvart, hann er greinilega sár og reiður. Hann kann trúlega illa að tapa. Ég get hins vegar ekki sagt að ég finni til með honum. Hann er að bragða nú á eigin ólyfjan og líkar bragðið og áhrifin greinilega illa. Rýtingsstunga í bakið á félaga sínum er svar hans líkt og margra annarra forvera hansNinja

Meinsemd hverfur aldrei  með skyndiplástraaðferðinni, það þarf að uppræta það áður en hægt er að græða upp eftir skemmdirnar. Meinsemdir hafa þá eiginleika að vaxa stjórnlaust, vaða yfir heilbrigðar frumur miskunarlaust og hreinlega ganga frá þeim. Þau eru auk þess illa í stakk búin til að sinna hlutverki sínu enda hvernig má annað vera?Sick

Ég hef ekki trú á því að unnt verði að byggja upp Framsóknarflokkinn fyrr en búið er að greina meinsemdina, staðsetja hana og finna úrræði til að eyða henni. Þá fyrst er hægt að hefja uppbyggingastarfið. Það er langt síðan að flokkurinn vék frá stefnu sinni og sýn enda uppsker hann í samræmi við það.

Eins og ég hef áður sagt, er elsti stjórnmálaflokkur landsins að niðurlotum kominn og fátt eitt getur orðið honum til bjargar nú.  Menn höfðu tækifæri til að breyta um kúrs og halda sig við yfirlýsta stefnu með lýðræði að leiðarljósi en kusu að gera það ekki. Mér finnst það miður enda fann ég margt í stefnu flokksins og hugsjónum hans sem samræmdust mínum hugmyndum. Orðin tóm eru gagnslaus, þeim þarf að fylgja eftir í verkum og athöfnum. Það verður seint hægt að segja að forystumenn síðustu ára ásamt fylgisveinum þeirra hafi verið okkur hinum góð fyrirmynd. Shocking


Ótrúlegt en satt

Ég hef seinni árin verið mikið fyrir hesta, kynntist þeim á unga aldri austur í Landeyjum en hafði aldrei tækifæri til að láta gamlan draum rætast fyrr en eftir fertugt. Á reyndar 2 hesta núna sem ég hef ekki tök á því að sinna en eru í góðu atlæti hjá góðum vini mínum ásamt Hektori hennar Kötu. Hestamennska er trúlega það mest gefandi áhugamál sem hægt er að hugsa sér og met ég hana mikils. 

Þegar ég sat í sveitarstjórn var ég mjög fylgjandi því að styðja við hugmyndir hestamannafélagsins Glaðs um byggingu reiðhallar heima í héraði.   Kannski stórhuga hugmynd  í fámennu byggðalagi en engin spurning að senda inn styrkumsókn til Landbúnaðarráðuneytisins í þeirri von að einhver styrkur kæmi þaðan. Samþykkti þá tillögu heilshugar og var hugmyndin sú að sveitarfélagið myndi leggja til sömu upphæð eða að hámarki 15 millj. kr. ef að umsóknin yrði samþykkt. Umdeild ákvörðun sveitarstjórnar á þeim tima. Ég taldi þessi áform verulega lyftistöng fyrir sveitarfélagið, jafnvel þó að reiðskáli yrði ofan á sem er heldur smærri í sniðum. 

Niðurstaðan Landbúnaðaráðuneytisins var hins vegar 5 millj. kr. styrkur til hestamannafélagsins. Varla upp í nös á ketti ef bygging reiðhallar væri enn inni í myndinni. Í öllu falli voru forsendur fyrir samþykkt sveitarstjórnar brostnar, 15 millj. ekki lengur raunhæf styrkupphæð. Nær væri að íhuga 5 milljónir. Í öllu falli var fyrri samþykkt ekki í gildi.

Stjórnarmenn hestamannafélagsin dóu ekki ráðalausir enda 2 þeirra í lykilstöðu í meirihluta byggðaráðs og sveitarstjórnar. Sem stjórnarmenn sendu þeir erindi til sveitarstjórnar sem tekin var fyrir í byggðaráði, samþykkt þar og afgreidd áfram í sveitarstjórn.  Farið var fram á samtals 12. millj. kr. styrk til byggingar á reiðhöll og vitnað í samþykkt fyrri sveitarstjórnar.   Formaður hestamananfélagsins og ritari stjórnar sem sendu inn styrkbeiðina hoppuðu síðan yfir borðið og samþykktu styrkbeiðnina umsvifalaust í krafti meirihluta sveitarstjórnar. Skiptu síðan um sæti og tóku við formlegu samþykki sveitarstjórnar og fögnuðu að sjálfsögðu ákaft rausnarskap hennar.W00t

Ótrúlegar klókir menn. Formaður hestamannafélagsins samþykkti styrkibeiðnina sem sveitarstjórnarmaður og undirritaði samkomulagið, bæði sem fulltrúi hestamannafélagsins og sveitarstjórnarmaður. Ritari félagsins gerði slíkt hið sama og afgreiddi þá styrkbeiðni sem stjórnin sendi sem formaður byggðaráðs og sveitarstjórnarmaður. Geri aðrir betur! Wizard

Hestamannaféalgið komið með 5 millj. kr. styrk frá Landbúnaðarráðuneytinu, aðrar 12 millj. frá sveitarstjórn. Félagið fékk  tilboð í hús 24 x 47 m sem mun kosta um 25 milljónir uppkomið. Með öðrum orðum ætlar hestamannafélagið að leggja til heilar 8 milljónir til hússins og fékk ,,stjórn félagsins umboð til að stofna hlutafélag í þeim tilgangi að byggja reiðhöll á svæði félagsins. Stjórn Glaðs er jafnframt heimilt að taka lán og selja hluti í félaginu til fjármögnunar verkefnisins.“  Á sama tíma námu eignir félagsins samtals kr. 10.906.694 kr.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig rotþróarmálin við hesthúsin þróast á þessu kjörtímabili. Sömu menn í hesteigandafélaginu og í sveitarstjórn. Spái því að annað hvort verði þau mál söltuð og samið við heilbrigðisfulltrúann enn og aftur eða að sveitarsjóður greiði þann kostnað sem hlýst af því að koma upp rotþróm og þar með skikkan á þau mál. Ég vænti þess að gróðurinn umhverfist hesthúsin njóti áfram lífræns áburðar manna og dýra í ótakmörkuðu magni í einhvern tíma enn.Shocking

Það er víða en í ríkisstjórnarflokkunum sem menn semja sínar eigin leikreglur. Þarna brjóta menn stjórnsýslureglur í bak og fyrir, bullandi vanhæfir og komast upp með það. Og það sem meira er, enginn hreyfir við mótmælum né gerir athugasemdir, hvorki varðandi hæfi manna né afgreiðslu mála.

 spilling

 

 

 

 

 

Hvað sem pólitískri spillingu líður er málefnið gott, ekkert jafnast á við íslenska hestinn

 0024 Islenski hesturinn_jpg


Enn önnur hetjan

En önnur hetjan er fallin í valinn af völdum krabbameins. Ung, fjögurra barna móðir, Sigríður í Lindarbæ lést fyrir skömmu. Ótrúlega jákvæð og lífsglöð og ætlaði sér svo sannarlega að sigra en sjúkdómur hennar tók óvænta stefnu.

Eftirlifandi eiginmaður og börn eiga um sárt að binda og því hefur verið stofnaður stuðningsreikningur þeim til handa. Sjálf þekki ég mæta vel  fjárhagslegar afleiðingar veikinda sem erfitt er að vinna sig í gegnum. 

Eftirfarandi kemur fram á heimasíðu Sigríðar og finnst mér sjálfsagt að vekja athygli á þrengingum þeirra.

,,Nú þarf fjölskyldan í Lindarbæ á stuðningi okkar að halda.

Sigga gaf okkur öllum svo mikið með skrifum sínum hér á síðunni og eins í öllum öðrum samskiptum. Hún, og fjölskylda hennar, var órúlega sterk og jákvæð í gegnum öll þessi veikindi. Eitthvað sem við getum öll lært mikið af. En þrátt fyrir æðruleysi og styrk þeirra, þá vitum við að heimilisreksturinn hlýtur að vera erfiður.

Sýnum nú stuðning í verki og látum af hendi rakna. Reikningsnúmerið er: 0152-26-6446 Kennitala: 250968-4509 " 
Rósa, Jóna og fjölskyldur

Vefslóðin á heimasíðu Sigríðar er: http://www.123.is/Lindarbaer/ 

Margt smátt gerir eitt stórt. Hvet alla til að sýna samhug í verki.

kross

 

 


17. janúar

Þessi dagur hálfheilagur hjá mér. Dánardagur móður minnar; Auðbjargar. Hún lést þennan dag fyrir 8 árum eftir óvenju harða, illviga en stutta baráttu við lungnakrabbamein. 'Atti í raun aldrei von um bata, það sér maður best eftir á. Sjúkdómurinn orðinn mjög útbreiddur þegar hún greindist og frumutegundin trúlega sú illvígasta sem hægt er að fá (neuroendocrine).  Var búin að vera lengi með sterkar vísbendingar en féllst ekki á að fara til læknist. Hafði orðið fyrir mjög neikvæðri reynslu 34 árum áður, greindist þá með leghálskrabbamein og var afskrifuð strax af hennar lækni. Hún  einungis 37 ára og átti 8 börn, það yngsta 2 ára. Hún neitaði að gefast upp, krafðist erfiðrar meðferðar sem var á tilraunastigi; radium geislar, sem voru gefnir í fantaskömmtum.  Geislunin svo gríðalega að eftir að radiumhylkinu hafði verið komið fyrir, var sjúkrastofunni lokað í rúman sólahring og konurna rmáttu bjarga sér sjálfar, fárveikar. Enginn vildi koma inn í alla geislana en þegar verst lét, fór einn hjúkrunarfræðingur inn og sinnti móður minni og gaf henni verkjasprautu. A.ö.l. varð hún að láta sig hafa þetta, með uppköst og mikla verki, stundum með annarri konu í sömu aðstöðu. 6 konur hófu þetta tilraunaverkefni, móðir mín var ein sem lifði sjúkdóminn og meðferðina af. Krafðist síðar aðgerðar þar sem restin af meininu var fjarlægð.  Enginn myndi sætta sig við slíka meðferð í dag en ávinningur hennar og okkar var 32 ár sem hún fékk og kom okkur öllum til manns. Hún vissi ábyggilega hvað bjátaði á síðustu mánuðina áður en hún greindist, það vissi ég líka. Hún þurfti hins vegar að ljúka ýmsu áður en hún tók á veikindunum.

roses and candles 2

Naflastrengurinn slitnaði aldrei á milli mín og móður minnar og var hún minn helsti trúnaðarvinur í gegnum súrt og sætt. Lá aldrei á skoðunum sínum og eins og ein vinkona hennar sagði í minningagrein um mömmu; hún var bæði gull og grjót. Hún vissi og sá meira en margur enda framúrskarandi næm. Það þýddi lítt að fara á bak við hana, man hvað mér fannst það bölvað á unglingsárunum.  Hún varði sig og sína af mikilli hörku og brást mjög harkalega við öllu ranglæti enda með ríka réttlætiskennd. 

 

Mér hefur oft fundist sárt að missa foreldra mína svo snemma, mamma nýorðin sjötug og pabbi sem fór 7 mán. síðar aðeins 69 ár úr sama sjúkdóm en var með aðra frumutegund.  Það er trúlega engin tilviljun að ég fékk bland í poka, sem sé frumtegundir beggja, þ.e. neuroendocrine og adenocarcinoma.

Ég er þess fullviss að margt hefði farið öðruvísi hjá mér á Sturlungaöld hinni síðari, ef ég hefði notið þeirra og getað sótt í þeirra reynslu- og viskubrunn. Það á ekki síður við þegar Guðjón fór, ég er viss um að stuðningur þeirra hefði fleytt mér og ekki síst krökkunum langt og yfir erfiðustu tímana.

En þessu ráðum við ekki. Öll göngum við að því vísu að fæðast í þennan heim og kveðjast. Hvenær veit enginn fyrirfram en þangað til verðum við að nýta tíman vel og á þann hátt að maður sé sáttur að lokni ævistarfi, hversu langt sem það verður. Númer eitt, tvö og þrjú er í mínum huga að getað undirbúið krakkana undir slíkan viðskilnað og farið frá góðu búi. Slíkur valkostur er ekki alltaf í stöðunni. Ég hef þá trú að annað taki við eftir að jarvist lýkur og að brottför manns sé eftirlifandi erfiðari en þeim sem kveður. Kannski er það tóm eigingirni en rosalega sakna ég foreldra minna

mammaAðbjörg Brynjólfsdóttir á góðri stundu.

 

 

 

   

 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Líf og fjör

Týndi sonurinn leggur af stað í nótt, mættur á svæðið upp úr kl.15.00 á morgun.
Mér skilst að það verði líf í tuskunum á systkinunum....Whistling

 

kata og Haffi

Katan búin að setja ölið í kælinn og móðirin leitar af vænu lambalæri.Wizard


Langur dagur

Komin á stjá fyrir 6 og næ vart að halda mér vakandi. Ætla að vera lengi að koma mér í réttan gírinn eftir langa fríið. Komist minna leiða til og frá vinnu í dag þrátt fyrir leiðinda færi. Ekki enn komin á negld, er á slitnum heilsársdekkjum þannig að siglingin sækist hægt hjá mér.

Kann ekki alveg á verkefnaleysið á kvöldin. Er eins og illa gerður hlutur og veit ekki hvað ég á að mér að gera.  Það ástand breytist á næstu dögum þegar allt er komið í fullan gang, þarf þá ekki að hafa áhyggjur af verkefnaskorti. Kann ekki að vera í fríi að loknum vinnudegi, hef alltaf þurft að halda áfram að honum læknum, oftast í vinnu tvö. 

Kosturinn við þetta letilíf er að ég fylgist betur með fréttum en oft áður. Viðtalið við sjallan og Siv í Kastljósi gekk fram af mér. Engin vitræn rök úr herbúðum sjalla í kvöld frekar en fyrri daginn. Horfi alla vega ekki á endursýningu þáttarins á eftir. Er farin að sofa, í fyrsta skiptið í langan tíma fyrir miðnættið. Sé varla á skjáinn hvað þá meir. Vinnuvikan að styttast í annan endan, sem betur fer. Hefði seint trúað því að mig hlakkaði til helgarinnar. Tíminn lengi að líða og allt silast áfram.  Ræs kl.06 þannig að það er best að vera skynsamur svona einu sinni. Auminjga Kata, sér mig varla þessa síðan hún kom heim en ég fæ langt helgarfrí og nægan tíma til að sofa út þá.  Er óttaleg B manneskja.Sideways  Sleeping


Frumburðurinn á heimleið

Haffi flaug í gegn um prófið í morgun með fullt stig húsa. Til hamningju Haffi minn, þennan árangur áttir þú svo sannarlega skiliðWizard  Wizard

Er á fullu að leita að og púsla saman flugi heim, nær að stoppa í 2 vikur.  Vá hvað það verður gaman hjá litlu famelíunni núnaHeart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband