31.10.2008 | 20:16
Virðingarverð viðleitni
Mér finnst þessi ákvörðun menntamálaráðherra og stjórnar LÍN virðingaverð viðleitni til að koma til móts við nemendur erlendis og hér heima. Hnaut aðeins um skilyrðin sem sett eru; ,,Námsmenn þurfa að sækja sérstaklega um aukalán, en þau eru ætluð þeim sem eru í sárri neyð og verður hvert tilvik metið af stjórn sjóðsins". Hvergi kemur fram hvaða skilyrði flokkast undir ,,sára neyð" og þvði hætt við að mati á umsóknum verði huglægt, hverju sinni.
Ég er ekki dómbær á það hvort að þessi viðleitni, sem hljómar upp á lán fyrir allt að 2 mán framfærslu erlendis og 1 mán hér heima, dugi til enda aðstæður nemenda ugglaust misslæmar, ekki síst reiknaðar út frá öðrum gjaldmiðli. Engu að síður er þetta skref í rétta átt.
Auk þess að þess að freista þess að bjarga því sem bjargað verður hjá mörgum, er verið að undirbúa jarðveginn fyrir næsta skólaár með því að lækka tekjuskerðingu enda ljóst að fjöldi atvinnulausra verður stjarnfræðilegur og aðsókn í háskólanám nær hámarki.
Í öllu falli tel ég að þessi ákvörðun stjórnvalda eigi eftir að létta mínum krökkum róðurinn í námi sínu í Debrecen. En talandi um krónuna í frjáslu falli og veikingu hennar gagnvart evrunni, þá sýnist mér það vera barnaleikur einn miðað við stöðu forintunar, ungverska gjaldmiðilsins. Hún herðir víðar að; sultarólin, en hjá okkur.
Stjórnvöld koma til móts við námsmenn erlendis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Facebook
Athugasemdir
já forintan er sko í maraþoni.. hún er samt ekki aalveg búin að ákveða sig hvaða leið hún fer.. Gengið hefur ekki verið eins í 2 daga síðustu dagana.. spes..
Katan , 31.10.2008 kl. 20:57
Skilyrðin verða sennilega mjög þröng og illtúlkanleg...skv. reynslu. En ákvörðunin sýnir skilning á sárum vanda námsmanna.
Sigrún Jónsdóttir, 31.10.2008 kl. 23:34
vonandi verður þetta námsmönnum til bjargar
Hólmdís Hjartardóttir, 1.11.2008 kl. 00:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.