15.10.2008 | 00:24
Ekki öll kurl komin til grafar
Mig skal ekki undra þó ráðamenn hafi tekið sinn tíma í að vinna með þessi mál öll sömul og fátt fengist af viti frá þeim fyrstu sólahringana eftir að skellurinn kom! Í hópi þeirra sem hlýddu á niðurstður úr þessari svörtu skýrslu voru Í hópi áheyrenda voru hagfræðingar frá Seðlabankanum, fjármálaráðuneytinu, einkageiranum og háskólasamfélaginu.
Það er ekki oft sem mig setur á hljóðan. Ég er kjaftstopp! Ekkert, nákvæmlega ekkert mun verða til þess að ríkisstjórn og aðrir ábyrgir aðilar endurheimti trúverðugleika og traust. Menn eiga að samstundis að víkja.
Bankaskýrsla undir stól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:27 | Facebook
Athugasemdir
Þaðer margbúið að vara okkur við. Nýi Nóbelsverðæaunahafinn í hagfræði skrifaði um það í mars sl að íslenska hagkerfið hefði orðið fyrir "árás " erlends banka. Svo það er margt að skoða.
Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 00:41
Ég gerði mér grein fyrir viðvörunum sem menn hundsuðu en að málið væri svona gróft, hvarflaði ekki að mér. Þetta er hrikalegt. Og svo ljúga ráðamenn upp í opið geðið á ekki bara þjóðinni heldur einnig að heiminum. Hvar endar þetta?
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 15.10.2008 kl. 00:57
Já nú fer krafan um að allir víki að verða háværari, þetta er algerlega óásættanleg hegðun og ábyrgðarleysi
Ragnheiður , 15.10.2008 kl. 01:04
Hér verður að fara fram rannsókn strax, en það verður náttúrulega ekki gert meðan sökudólgarnir sitja við stjórn.
Sigrún Jónsdóttir, 15.10.2008 kl. 07:15
Kærleikskveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.10.2008 kl. 07:36
"Aðstoðarforstjóri Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði.
Vefurinn liggur niðri vegna "viðgerða"Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslenskum bönkum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að minnta ástæðu til að ætla að staðan sé tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.
Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem
þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum. Sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum.
Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslenska bankakerfið sé mjög stöndugt."
Skrifað af og tekið af vef Hæstvirts Viðskiptaráðherra hr Björgvin G Sigurðssonar.
Johann Trast Palmason, 20.10.2008 kl. 18:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.