Góð samstaða

Feiki góð samstaða meðal hjúkrunarfræðinga, tæplega 64% þátttaka í atkvæðagreiðslunni og um 95% þeirra fylgjandi yfirvinnubanni og þar með hertum aðgerðum vegna kjarasamninganna. Um leið yfirgnæfandi stuðningur við forystuna.

Ég er mjög sátt, segi þó ekki að ég hefði viljað sjá þátttökuna um 90% en  engu að síður mjög ásættanleg niðurstaða, ekki síst í ljósi þess að margir eru í sumarfríum o.þ.h. 

Til hamingju með samstöðuna hjúkrunarfræðingar, þetta er hægtWizard


mbl.is 94,6% vilja yfirvinnubann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta er flott. Bara yfirvinnustöðvun hefur strax víðtæk áhrif.

Hólmdís Hjartardóttir, 23.6.2008 kl. 17:52

2 Smámynd: Sigrún Óskars

Þetta er frábært - við getum staðið saman ef við viljum. Segi líka til hamingju með þetta, nú verður tekið á því og launin leiðrétt.

Sigrún Óskars, 23.6.2008 kl. 17:56

3 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Nákvæmlega!  Við höfum dregist svo aftur úr að það er lyginni líkast. Ég hef þá trú að almenningur átti sig ekki á því hversu lágt við röðumst. Starfsreynsla og menntun lítils virði og tækifæri til launahækkanna rýr nema að vinna ómælda yfirvinnu.

Hvaða háskólamenntaðar stéttir sætta sig um 250 þús í mánaðarlaun eftir 4 ára háskólanám svo ekki sé minnst á alla ábygðina og álagið sem fylgir starfinu?

Elflaust þarf stéttin að taka tillit til ástandsins í þjóðfélaginu en ég hef ekki trú á því að nokkur maður samþykki samninga sem fela ekki í sér mótvægi gegn minnkandi kaupmætti og óðaverðbólgu. 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 23.6.2008 kl. 18:24

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta er bara frábært.  Til hamingju með þessa niðurstöðu.  Ég stend með ykkur!

Sigrún Jónsdóttir, 23.6.2008 kl. 19:19

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Baráttukveðjur.

Georg Eiður Arnarson, 23.6.2008 kl. 19:39

6 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Þetta er bara frábært og til hamingju

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.6.2008 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband