Kemur þetta eitthvað á óvart?

 Ég hef löngum haft þann grun að til stæði að einkavæða allt heilbrigðiskerfið. 40% þegar komin skv. opinberum yfirlýsingum.  Ég er ansi hrædd um að mörgum bregði í brún núna. Það jákvæða gæti gerst að þjónustan yrði hugsanlega mannsæmandi, mistökum myndi kannski fækka og líf landsmanna margra lengjast að sama skapi. 

Eins og einhverjum varð á orði; ,,If you can´t beat them, join them"Tounge

Spái því að aðild í ESB verði undirbúin á þessu kjörtímabili með bindandi samningum. Frumvarp um opinbert hlutafélag fer í gegn sem og aðild að ESB.  Ekkert stoppar núverandi ríkisstjórn enda í bullandi meirihluta á þingi.  Þetta kaus þjóðin og þetta vill hún. Nú verða hraðar hendur. Cool Gúrkutíð framundan hjá tryggingafélögunum, hverjir aðrir skyldu nú hagnast?Wizard

Einhver skýring hlaut að koma á brottrekstri forstjóra LSH.  Þarf nokkuð fleiri orðWhistling


mbl.is Landspítalinn opinbert hlutafélag?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sé engan tilgang með einkavæðingu án virkrar samkeppni á markaði, og öflugs eftirlits með vönduðum gæðastöðlum.

Hef ekkert á móti einkavæðingu ef hún er almennilega undirbúin og fylgt eftir, en er ósáttur við einkavæðingu sem trúarbrögð.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.4.2008 kl. 09:11

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ameríska módelið er ekki það sem Samfylkingin hefur talað fyrir hingað til, það verður því ansi fróðlegt að sjá/heyra hvernig þeir munu snúa sér í þessu máli.

Sigrún Jónsdóttir, 21.4.2008 kl. 09:13

3 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ég hef þá trú og hef haft lengi að ekkert muni stoppa einkavæðinguna. Sjálfstæðismenn eru komnir á flug enda í draumastöðu.  Ég er ekki á móti henni svo fremi sem hlutdeild sjúklinga eykst ekki. Samkeppni getur verið af hinu góða, engin spurning. Hins vegar hefur reynslan sýnt það að sjúklingar eru margir hverjir að greiða mun meira en áður, ekki síst vegna þess að ríkið er ekki að semja við sérfræðinga.

Bandaríkjamenn reyna hvað þeir geta að komast út úr sínu módeli á sama tíma og við ætlum að apa það eftir. Þeir efnameiri og vel tryggðu fá góða þjónustu, fagfólk streymir á einkastofnanir og þær sem verða á vegum ríkisins greiða lægri laun og hafa síðra starfsfólk á sínum snærum, það gefur auga leið. Ekki gefa veit ég hvað Samfylkingin er að gera í þessu stjórnarsamstarfi annað en að gefa forystusauðunum tækifæri til að uppfylla persónulega drauma og markmið. Þeir baða sig í frægðarljósinu og eru að bjarga heiminum á meðan allt er að sigla í kaldakol hér heima.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 21.4.2008 kl. 10:49

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Við viljum ekki bandaríska módelið hér. Ekkert heyrist í Samfylkingu. Ég er smeyk við framhaldið.

Hólmdís Hjartardóttir, 21.4.2008 kl. 11:04

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ástarkveðjur knús og kossar

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.4.2008 kl. 17:25

6 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Kær kveðja .

Georg Eiður Arnarson, 22.4.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband