16.1.2008 | 14:11
Frumburðurinn á heimleið
Haffi flaug í gegn um prófið í morgun með fullt stig húsa. Til hamningju Haffi minn, þennan árangur áttir þú svo sannarlega skilið
Er á fullu að leita að og púsla saman flugi heim, nær að stoppa í 2 vikur. Vá hvað það verður gaman hjá litlu famelíunni núna
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
kvitt-kvitt og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 16.1.2008 kl. 14:17
TIL HAMINGJU HAFFI Þú ert alltaf að sanna það meir og meir hvað þú ert seigur. Svei mér ef það er ekki eitthvað af ömmu þinni og mömmu í þér
Til hamingju Gunna mín, trúi því að þú sért stolt af frumburðinum þínum Og ekki er stelpan síðri þannig að þú er rík Vonandi fær maður að hitta ungana áður en þeir fara út aftur
Þeir verða glaðir, frændurnir, að hittast aftur
Heyrumst vonandi fljótlega
Sigrún sys (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 17:50
Til hamingju.
Georg Eiður Arnarson, 16.1.2008 kl. 18:33
Takk fyrir kveðjurnar öll, viðurkenni að ég er ekki lítið stolt af frumburðinum núna. Prófessorarnir hafa verið að fella nemendur í gríð og erg, þeir hafa margir steinlegið, jafnvel að óskekju þar sem mottóið virðist vera að fella menn og spyrja út úr óskildu námsefni. Ef þeir falla ekki á ,,minimölum" þá krufningunni. Haffi sáttur við sín prófverkefni, heilinn, blóðsjúkdómar o.fl.
Drengurinn greinilega pollrólegur í morgun og náði að gera sitt besta. Flýgur heim á föstudag, punkteraður núna síðan 5 í morgun, hefur ekki einu sinni lyst á einum öl
Auðvitað hittast frændurnir Sigga mín, það munum við öll gera á næstunni. Er alltaf með síman hans Dóra í veskinu en hef flýtt mér á brautina í þessu veðri, vil ekki verða innlyksa. Sjáum hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 16.1.2008 kl. 21:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.