16.7.2007 | 23:38
Anda djúpt og ...............
Fékk góð og holl ráð við síðustu færslu, orð sem sannarlega hittu í mark og komu mér niður á jörðina. Í stað þess að horfa í örvæntingu til allra átta er skynsamlegra að "láta sig fljóta" aðeins og bíða átekta. Lausnin ratar til manns og málin leysast á réttum tímapunkti. Í öllu falli þegar maður sjálfur er tilbúinn
Það að finna ekki kompásinn, vera rammvilltur, þurfa að taka til ótal, mismunandi aðstæðna og aðila á sama tíma og þóknast öllum, getur gert hvern mann vitlausan og í raun ekki á færi eins eða neins. Ætla að einbeita mér að verkefnum dagsins hverju sinni og gera mitt besta.
Búin að fá staðfestingu á fimmtudeginum, fer í sneið og skann skv. áætlun. Réttir varahlutir rötuðu í hús, var mér tjáð í dag. Niðurstöður vonandi eftir helgi.
Komst á góðan skrið seinni partinn við að byrja á erfiðum málum, kannski er staðan ekki eins vonlaus og ég hélt, hver veit? Það verður bara að koma í ljós. Enginn sófalúr í dag og verkirnir eftir því. Er komin í gang sem skiptir öllu máli. Nú er að halda dampi og gæta þess að pompa ekki niður. Af nógu er að taka næstu daga og vikur, nú reynir á að draga andan djúpt ot telja upp á tíu
Athugasemdir
knús
gummi (IP-tala skráð) 17.7.2007 kl. 00:57
Gott að heyra. trúi á þig. Ég kvittaði í gestabókina og svaraði þar nokkrum spurningum sem þú lagðir fyrir mig á mbl.blogginu. Gangi þér vel á fimmtudaginn.
Gíslína Erlendsdóttir, 17.7.2007 kl. 21:53
Knús til baka elsku Gummi, takk
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.7.2007 kl. 14:46
Kærar þakkir Gíslína, það var virkilega gaman að fá svörin, verð í sambandi via tölvupóstinn, mér sýnist ástæða til að skoða ættarsögu e-ð betur.
Reyni að hugsa sem minnst um fimmtudaginn en óttalega er kveikurinn eitthvað stuttur upp á síðkastið......
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.7.2007 kl. 14:49
Ekkert að þakka knúsið, það er bara gaman að sjá að þú virðist vera að ná einhverjum vopnum. Allavega farin að hvæsa
Sendu mér smá línu á netfangið mitt.
Stórt knús frá stóra GJG
Guðmundur (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 18:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.