Fréttir af 11 E

Hæhæ, Katan bloggar frá 11 e, okkar ástkæru deild sem við köllum annað lögheimilið okkar. 

Hérna gengur allt frekar hægt eignlega of hægt að okkar mati.  Nokkur bakslög hafa komið upp sem við höfðu síður viljað sjá.  Það hafa komið nokkrir dagar sem hún hefur sofið eins og þyrnirós og læknum ekki litist á en alltaf stendur hún upp.  Síðast fékk hún lungnabólgu á mánudag og er á sýklalyfjum og virðist  virka vel.  Gengur brösulega að verkjastilla hana og virðist hún alltaf vera með verki 24/7.  Við vonum að það fari að lagast.   Hún er öll að koma til með hverjum degi og skellti sér í bíltúr með okkur í gær.  Við vonum bara að hún komist heim í næstu lotu! Smile

Við systkinin skiptumst á að vera hjá henni hérna og halda henni félagsskap.  Wink  Auja frænka hefur komið og verið hetjan okkar, Dagny og Systa hafa komið með smá gógæti fyrir okkur og Sigga hefur ekki sparað sporin alla leið úr Keflavík og stytt okkaur stundirnar.  Takk fyrir okkur! 

Þangað til næst biðjum við að heilsa og þökkum fyrir allar kveðjurnar,

Kveðja Katan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk fyrir þetta elsku Kata mín...viltu knúsa elsku Mömmu þina og bera henni ljúfar kveðjur frá mér:=) ég bið Guð og hans ljúfu fallegu Engla yfir henni vaka,vernda og veita henni styrk í þessum erfiðum veikindum..um leið kveiki ég á kertum og hugsa til hennar elsku vinkonu minnar og bið fyrir henni....knús og ljúfar kveðjur...Linda og fjölsk.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.2.2009 kl. 22:15

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús og kveðjur til þinnar elskulegu móður Kata mín.  Sendi ljós og kraft til ykkar allra og von um betri tíð

Sigrún Jónsdóttir, 2.2.2009 kl. 22:24

3 identicon

Sendi ykkur öllum kærleik og ljós.

Bið Guð og allan englahópinn að vera með ykkur.  Þetta er hrikalega erfitt heyri ég.

frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 09:34

4 Smámynd: Ragnheiður

Kata mín, hjartanlegt knús til ykkar beggja. Þetta gengur erfiðlega en mamma þín er ótrúlega sterk kona og mögnuð.

Bestu óskir til ykkar

Ragnheiður , 3.2.2009 kl. 10:33

5 identicon

Kæra Guðrún Jóna

Ég vildi bara senda þér og einstaklega duglegu börnum þínum baráttustrauma . Við höfum nú aðeins rekist á hvor aðra á LSH svona þegar ég er á leiðinni í vinnuna.

Megi góðar vættir vaka yfir ykkur og styrkja

Báráttukveðja af skaganum

Sibba (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 20:47

6 Smámynd: Sigrún Óskars

Sendi ykkur mínar bestu kveðjur, með von um betri tíma fyrir þig Guðrún Jóna. Nú er farið að birta af degi og vona svo sannarlega að um leið fari að birta hjá þér.

kærleikskveðjur  

Sigrún Óskars, 3.2.2009 kl. 21:08

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Viljið þið skila ljúfum kveðjum. 

Anna Einarsdóttir, 3.2.2009 kl. 21:32

8 identicon

Sæl kata mín og Hafsteinn!

Datt inn á síðuna hennar mömmu ykkar í gær og þurfti tíma til að melta allt sem á daga hennar og ykkar haf drifið. Ekki er það lítið. Ég hefði nú viljað frétta eitthvað betra en þetta, en upp úr þessu rífur þú þig ef ég þekki þig rétt. hef oft hugsað til þín og ykkur. Frábært hjá ykkur systkinum að vera í læknanámi og hafið staðið ykkur alveg frábærlega vel, (hef visku mína af þessari bloggsíðu.

Mið Guð og alla heimsins engla að varðveita ykkur og styrkja, hef alltaf hugsað til ykkar frá því þið fóruð héðan.

hafið það alltaf sem best og ég fylgist með ykkur héðan í frá.

Kveðja Munda í Ólafsvík

Guðmunda Wíum (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 22:25

9 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

Innilegar kveðjur til mömmu þinnar. Hún á góð börn sé ég

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 4.2.2009 kl. 02:16

10 Smámynd: Sigþóra Gunnarsdóttir

Kæra Guðrún mín !!!!

Sendi þér og krökkunum baráttukveðjur, Megi allir verndarenglar himinsins vera yfir ykkur ALLTAF

Með góðri kveðju af Skaganum

Sigþóra Gunnarsdóttir, 4.2.2009 kl. 11:57

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sendi alla þá orku sem ég get

Hólmdís Hjartardóttir, 4.2.2009 kl. 12:37

12 identicon

Baráttukveðjur frá London. Gangi ykkur vel.

 kv. gunni

Gunnar Þór (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 17:13

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku besta sendi ykkur öllum ljós og kærleik.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.2.2009 kl. 20:13

14 Smámynd: Sigþóra Gunnarsdóttir

Kæra Gurðrún !!!

Ég er búin að vera með hugann við þig og þín veikindi í allan dag, vonandi hitta þessar línur þig við BESTU MÖGULEGU heilsu mín kæra fyrrverandi kennari. Hef hugsað mikið um tímann sem við áttum saman í FVA og þá vináttu sem myndaðist á milli okkar þá. Sendi þér enn og aftur allar mínar bænir og bestu hugsanir

Með kærri kveðju af Skaganum til þín og krakkanna þinna

Sigþóra Gunnarsdóttir, 5.2.2009 kl. 21:28

15 identicon

Sendi baráttukveðjur til þín mín kæra.   

kv. Guðrún Fanney.

Guðrún Fanney. (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 22:05

16 Smámynd: Ásta Björk Solis

Hjartans kvedjur til mommu thinnar og thin eg bid fyrir ykkur

Ásta Björk Solis, 5.2.2009 kl. 23:27

17 identicon

Elsku Guðrún Jóna,

Hugsa til ykkar og sendi baráttukveðjur mín kæra.

Þú átt greinilega yndisleg börn.

bkv Birna Katrín

Birna Katrín Hallsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 20:37

18 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ljós og kærleik til ykkar allra
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.2.2009 kl. 20:44

19 identicon

Elsku Guðrún Jóna

Sendi þér baráttukveðjur, hugsa til þín og þinna

Inga (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 07:48

20 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Elsku Guðrún Jóna mín sendi ykkur öllum ljós og kærleik.

Vinnufélagi.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 7.2.2009 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband