Einstök upplifun

Senn líður að því að fyrri hálfleik sé að ljúka í geislunum, þ.e miðað við fyrsta plan. Er u.þ.b. hálfnuð í mínum daglegum ferðum á geisladeild LSH og fór í vikulega lyfjaskammtinn í gær. Þetta hefur gengið ágætlega og það verður að segjast eins og er að ég þoli meðferðina ágætlega, hingað til. Ég finn nú greinilega að þeir heiftarlegu verkir sem hafa verið að plaga mig síðasta árið eru á undanhaldi, þarf minna af verkjalyfjunum og tek þau sjaldnar. Næturnar ennþá verstar eins og lög gera ráð fyrir. Á móti koma vaxandi aukaverkanir sem heldur er að aukast.  Húðin á fingurgómunum flagnar og ég eitt sprunguvæði sem auðveldar mér ekki vinnuna beint á lyklaborðinu. Ég þjáist af sívaxandi síþreytu og þegar ég tel að hámarki sé náð í þeim efnum, verð ég þreyttari. Ekkert sem kemur að sök, það er ekki svo að ég sé með stórt heimili og fullt hús barna. Mér er sagt að ,,eðlilegur svefn" hjá mér núna sé ekki undir 12-14 klst.á sólahring. Ég næ þeim tímaramma léttilega, eins og ég hafi aldrei gert neitt annað. Það virðist ganga ágætlega að ,,grilla" svæðið, er með mikinn brunaverk í vélinda sem er að þvælast þarna fyrir.Allt saman fyrirsjáanlegar aukaverkanir en hálfleiðinlegar.

Auðvitað er farið að taka í, ekki síst andlegu hliðina. Ég reyni að finna mér nóg til dundurs og hef það eiginlega en kannski ekki alveg það úthald og ég hefði kosið til að sinna því dútli mínu. Mér leiðist því eins og þetta heitir á góðrí íslensk, svo einfalt er það og kemur í bylgjum. Ég hef fallið ofan í þá gryfju, líkt og margur Íslendingurinn, að fyllast hálfgerðu vonleysi vegna stöðu efnahagsmála í landinu sem bætast ofan á eigið bölsýni í fjármálum. Horfurnar eru almennt rosalega dökkar og ekki var á það bætandi sem okkar bíður í vetur. Ég hef ekki leyft mér að hugleiða það til enda hvernig mín mál koma til með að líta út eftir nokkrar vikur, mánuði. Reynin að taka einn dag í einu og höndla hann fyrst. Það stoðar hins vegar lítt að vera með ,,strútsheilkennið" of lengi, einhvern tíman verð ég koma hausnum upp úr sandinum og meta stöðuna. Gerði það reyndar og afleiðingarrnar létu ekki á sér standa; ég varð bullandi svartsýn.

Þann sama dag fékk ég synjun frá TR en læknir minn hafði sótt um leigubílastyrk vegna daglegra ferða minna á LSH.  Matnefnd TR þótti ekki sannað að ég gæti ekki nota almenningssamgöngur til minna ferða í meðferðina. Ég hef aldrei verið dugleg að biðja aðra um aðstoð né að sækja um þann rétt sem ég kann að eiga. Þessi niðurstaða fór alveg með það. Mér finnst ég náttúrlega algjör aumingi, margur þarf að sætta sig við að komast ekki einu sinni í strætó en fá samt synjun fyrir öðru úrræði í okkar velferðarkerfi, þegar þörfin er augljós og er þá vandi þeirra oft viðvarandi um ókomna tíð.  Ég þarf ekki að kvarta en einhvern veginn er ég ósátt og kvarta því.  Ég er ekkert of góð til að taka strætó frekar en aðrir en þegar kemur að því að ferðast með honum í þessu ástandi verð ég að játa mig sigraða. Ég myndi sennilega ekki endast aðra leiðina miðað við stöðuna eins og hún hefur verið.

Ég hef alla tíð átt hábölvað með að biðja aðra um aðstoð eða stuðning. Ekki vegna þess að aðrir bjóði ekki upp á það, síður en svo, ég er bara vön því að gera hlutina og berjast fyrir þeim sjálf. Uppeldið líklega, við erum flest svona systkinin en tökum því ekki vel ef við megum ekki aðstoða aðra. Svona týpísk ,,eigingirnisafstaða" og ómeðvitaður hroki en það hefur reynst erfitt að kenna gömlum hundi að sitja í þessum efnum. Mér er það oft legið á hálsi og hef reynt að taka á þessu viðhorfi mínu. Í þessum veikindapakka verð ég að sækja rétt minn til að komast í gegnum ferlið en á á hins vegar ekki von á því að senda inn aðra umsókn til TR um styrk til ferðaflutnings. 

Einmitt þegar sjálfsmeðaumkvun mín stóð sem hæst í vikunni og ég sá sæng mína útbreidda í vetur með alla óvissuna um það hvort ég ætti yfir höfuð eitthvert heimili þegar líða tekur á veturinn, var mér rétt útrétt hönd úr átt sem ég hefði aldrei látið mér detta í hug, hvað þá hugleitt að taka við.  Sú útrétta hendi barst frá fólki sem ég þekki lítið, hef einungis haft örlítil kynni af og þótt alveg einstaklega lífsglatt og bjarstýnt fólk. Hef einmitt ímyndað mér að á því heimili ríki mikil glaðværð og gleði og oft reynt að taka mér þann hugsunarhátt sem mér finnst einkenna þetta fólk, mér til fyrirmyndar. Mér finnst kannski ekki rétt að útlista frekar með hvaða hætti þau rétta mér hendi og stuðning en get ekki sagt annað en að ég hef aldrei kynnst jafn mikilli manngæsku og mannkærleik og hjá þeim sem endurpeglast í viðhorfi þeirra til lífins og til okkar hinna.  Eftir miklar vangarveltur og heilabrot þekkist ég gott boð þessa fólks, í fyrsta skipti á ævinni þáði ég útrétta hendi frá ókunnugum, ef svo má að orði komast. Því tókst að sannfæra mig um að það væri svo rétt og þannig upplifi ég það nú.  Ég hef alla tíð verið allt of treg til að þiggja aðstoð annarra, í sama hvaða formi hún birtist og skýlt mig á bak við ,,ég get þetta sjálf"; ,,ég þarf ekki" o.s.frv. Hlý orð og andlegur stuðningur eru dæmi um ómetanleg framlög af hálfu annarra en við alltof feimin til að taka á móti.  Sú ,,gjöf" sem ég þáði þennan dag gjörbreytti ansi miklu fyrir mig á þessum tímapunkti og breytti mér að sama skapi. Hjartans þakkir fyrir mig, hjartahlýja fólk. Þetta var eintök upplifun og ómetanleg hjálp sem barst á hárréttum tíma. InLove

Það er því margt sem hefur farið í gegnum kollinn síðustu dagana. Er ákveðin í að forðast að kafa ekki of djúpt í þær fréttir sem okkur berast af enfahagslífinu, mörgum sinnum á dag. Ég get hvort eð er ekki breytt því en get reynt að búa mig og mína undir það sem koma skal og reyna að miðla þvís em ég á, til annarra.'

Ástandið hjá krökkunum í Debrecen er óbreytt, hátt gengi og erfiðleikar með millifærslur há þeim nokkuð en þetta gengur þó og þau svelta ekki þó ólin sé hert. Farið að styttast í önnina í annan endan, þau bæði á kafi í hlutaprófum og hefur gengið vel. Kata hefur lagt áherslu á það sama og Haffi hefur gert,  að reyna að ná settu lágmarki í öllum hlutaprófum til að geta sloppið  við sum af lokaprófunum og stytta þannig prófatörnina og lengja að sama skapi jólafríið. Þau stefna á að vera heima um jólin en það er of snemmt að segja þar til um hvorum megin við verðum.  Við verðum alla vega saman.  Ég verð væntanlega á fullu í meðferðinni fram að jólum, púlsinn verður tekinn núna upp úr miðjum nóv, m.t.t. árangurs og næstu skrefa þannig að allt er skv. grófum dráttum ennþá. Hef aðeins dregist aftur úr geislunum vegna aukaverkana en ekkert teljandi samt. 

Svo virðist sem 3.-5. dagur eftir lyfjagjöf þýði veikindi og barlómur, ekkert sem er óasættnalegt eða óyfirstíganlegt. Sætti við það að helgarnar fara í það vera í bólinu og hafa það náðugt, finnst ég höndla þetta allt saman með glans á meðan ég er ekki með fötuna um hálsinn og stöðuga rugguveiki eins og var að gera út af við mig síðast. 

Framundan er áframhaldandi vinna við áætlanir og björgunarðgerðir. Ömurlega umóknarferli í okkar þunga velferðarkerfi  sem hreyfist á hraða snigilsins. Þar á bæ þykir eðlilegt að umóknarferli taki 6-8 vikur eftir að gögn berast í hús; Nota bene! Verð vonandi nógu brött á morgun til að ljúka einhverjum erindum.  Það virðist svo eilífðarverkefni að hringja í þessar stofnanir og minna á sig. Hrikalega leiðinleg verkefni, oj!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

elsku Guðrún, það er ómetanlegt að hitta fólk sem vill manni vel jafnvel þó maður sé jaxl eins og við báðar erum líklega.

Þú hefur líklega verið þarna á svipuðum tíma og Aldan mín í gær. Hún er enn í lyfjameðferðinni.

Bestu kveðjur

Ragnheiður , 7.11.2008 kl. 01:07

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

GJ ekkert getur glatt mig meira en að gott fólk fólk fái að styrkja þig.................nema að Rolling Stones komi til Íslands!!!!!!!!!!!!     Þyggðu alla hjálp sem berst.

kveðja frá fíflinu

Hólmdís Hjartardóttir, 7.11.2008 kl. 01:58

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Yndislegt af þessu fólki að rétta þér hjálparhönd, þú átt það svo sannarlega skilið. Þú ert hetja

Kristín Gunnarsdóttir, 7.11.2008 kl. 10:01

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

MySpace and Orkut Butterfly Glitter Graphic - 6Knúsknús og ljúfar kveðjur inn í ljúfa helgina.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.11.2008 kl. 10:42

5 Smámynd: Katrín

kannast við þetta: að sælla er að gefa en þiggja en ...það þýðir EKKI að EKKI megi þiggja  Reyndi að ná í þig eitt kvöldið en miðað við svefntímann hjá þér þá er það helst á nóttunni  hringi í nótt!!hehehe

Katrín, 7.11.2008 kl. 12:17

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þessi færsla var bæði sár og ljúf aflestrar.  Maður verður aldrei minni manneskja við að þiggja hjálp, en þeir sem hjálpa verða "stærri" og það er bara gott mál.

Bestu kveðjur til þín Guðrún mín

Sigrún Jónsdóttir, 7.11.2008 kl. 12:22

7 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Takk fyrir að deila þessu með okkur

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 7.11.2008 kl. 12:57

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er vonandi að kreppan verði til þess að fólk hugi minna að veraldlegum gæðum og hugi meira hvort að öðru.  Ég held að í erfiðleikum sýni fólk á sér betri hliðar en annars, að þá séu meiri vaxtarskilyrði fyrir kærleika. 

Sælla er að gefa en þiggja.  Ég er viss um að fólkið er alsælt.   

Anna Einarsdóttir, 7.11.2008 kl. 17:59

9 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Barráttukveðjur.

Georg Eiður Arnarson, 7.11.2008 kl. 20:19

10 Smámynd: Sigrún Óskars

Guðrún, það er skrítið að þú fáir "nei" þegar blóðskilunarsjúklingar fá´"já". sumir blóðskilunarsjúklingar keyra sjálfir heim eftir skilun. Ég spyr aftur: fyrir hvern er TR?

gangi þér vel í meðferðinni -  knús og kærleikur til þín

Sigrún Óskars, 7.11.2008 kl. 22:58

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Guðrún mín yndislegt að þú skildir fá hjálp og að þú gast tekið við henni, það er nefnilega eigi sjálfgefið að við getum það.

Ég mundi fá einhvern til að berjast við TR þeir afgreiða bara málin eftir hentugleika að manni virðist.

Gangi þér vel og orku og kærleik sendi ég til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.11.2008 kl. 12:12

12 Smámynd: Katrín

Góðan daginn sys - hef verið að reyna að ná í þig -

Katrín, 9.11.2008 kl. 11:40

13 Smámynd: Ragnheiður

Knús á þig elskuleg, þér líður vonandi bærilega.

Takk fyrir gott innlegg á mína síðu

Baráttukveðjur

Ragnheiður , 10.11.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband